Hér er Ég !

  • Nafn: LáraH.
  • Netfang: l.hardardottir@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp

Dada da da da ......

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Fréttir

26. ágúst 2010 klukkan 14:23
Jæja...................... Ákvað að nú skyldi ég gefa mér tíma og rita nokkur orð.  En sjálf er ég orðin þreytt á að sjá alltaf "Nýjasta Klárið".  Kominn tími á að ég segi ykkur fréttir af mér.

Ég er byrjuð að leita mér að öðru starfi.  Vinnutíminn á núverandi vinnustað hentar mér engan veginn svo nýja starfið verður að vera dagvinna.  VERÐUR!  Vaktavinna kemur EKKI til greina.  Helst vildi ég komast hjá því að vinna um helgar en ef það verður ekki möguleiki þá bara verður það að vera.  En samt ætla ég ekki að vinna 12tíma vaktir báða dagana einsog á núverandi vinnustað.  ÓNEI!

Ég hef aðallega verið að senda ferilskrá mína til fyrirtækja sem ég hef áhuga á að vinna hjá en mig langar mikið til að starfa á lager í framtíðinni.  En það er jú ennþá kreppa og því miður ekki um mörg lagerstörf að velja.  Ég er dugleg að senda á fyrirtæki sem ekki eru að auglýsa eftir fólki, sakar ekki að reyna.  En einsog staðan er í dag þá væri ég ekkert á móti því að finna mér starf þar sem ég gæti hugsað mér að stoppa í óákveðinn tíma ef ske kynni að lagarstarf myndi poppa upp í hendurnar á mér seinna. 

- Þá vitiði það Surprised

Ég skráði mig í Weight Loss Challenge sem er skemmtilegt prógramm sem hjálpar einstaklingum að léttast.  Leikreglurnar eru skýrar:
......Mæting 1x í viku - skróp kostar 500 kr. (1x stikkfrítt)
Þynging kostar 100 kr. á hver 100gr.
Létting og þú færð happdrættismiða – vinningur dreginn út í hverri viku.
Mæta vikulega og vigta, sitja fræðslu um næringu, hreyfingu ofl. sem gott er að vita þegar verið er að breyta lífsstílnum.

Hvað kostar?
6.000 kr.
1/3 fer í kostnað (happdrættisvinningar) og 2/3 fer í verðlaunapottinn.

Hvernig skiptast svo verðlaunin?
Verðlaunapotturinn (þátttökugjöldin)
1.sætið fær 50% af pottinum
2.sætið fær 30% af pottinum
3.sætið fær 20% af pottinum

Bónuspotturinn fer til þess aðila sem tekur af sér flesta sentimetrana og er ekki í 1., 2. eða 3. sæti í verðlaunapotti. Bónuspotturinn samanstendur af refsigjöldum úr skrópi og þyngingu.

Prógrammið er Herbalife verkefni en það er ekki skylda að vera á því. 

Það væri þvílíkur lúxus ef ég þyrfti ekki að opna budduna mína nema 1x, s.s bara fyrir 6.000.- krónurnar ;)

- Læt þetta duga í bili. 

Nýjasta Klárið.

20. júlí 2010 klukkan 18:08


- Er alveg ofboðslega ánægð með nýjasta listaverkið mitt en Margrét frænka & Bói á Höfn fengu það í gjöf frá mér & foreldrum mínum.  En þau eiga bústað í Lóninu sem ber nafnið "Víðibrekka" og er þegar búið að hengja verkið upp á besta stað í bústaðnum :)

PrjónaVerkefni númer Tvö.

30. júní 2010 klukkan 23:18


- Ég bara elska þessa peysu.  Frá toppi og niður.  Liturinn er líka ógó flottur.  En því miður fann ég ekki nógu fallegan grænan lit í búðinni sem ég var stödd í á Eskifirði svo ég ákvað að prjóna hana í rauðum plötulopa. 
Er búin með fyrstu ermina og sú seinni gengur ágætlega.  Svo með þessu áframhaldi þá mun ég klára hana fyrir veturinn enda fullkomin vetrarpeysa. -

Annars er ég byrjuð að vinna aftur eftir sumarfrí.

Nýjasta Klárið.

26. maí 2010 klukkan 01:28


Ágústa Lea Guðjónsdóttir er dóttir Guðfinnu frænku & Guðjóns en sú fyrrnefnda kom í heiminn þann 18.maí :)

..............

26. maí 2010 klukkan 00:47
Mér finnst ég vera orðinn svo lélegur penni að ég nenni varla að gefa mér tíma til að blogga.  Og trúið mér, nógur er tíminn.  Ég geri lítið annað en að horfa á sjónvarpið og eða nördast í tölvunni.  Hún er allavegana aldrei langt frá mér, s.s tölvan.  Oftast bara í kjöltunni eða við hliðina á mér. 

Í dag byrjaði 10 daga vinnutörn hjá mér.  Ég kvíði mun minna fyrir þessari törn því ég byrja svo í 3vikna sumarfríi strax eftir starfsmanna-fundinn 3.júní, nánar tiltekið klukkan 13.  Oooh, það verður svo næs :)
En venjulega þoli ég helst vinnutarnir sem eru einungis í 5-6 daga.  Ég er þá bara búin á því andlega og verð að fá smá frí.  Þó ekki nema bara í einn dag.  Aðalmálið er að hafa rétta hugarfarið þá verður allt miklu auðveldara.  Og hugsa bara um einn dag í einu.  Ég er nefnilega að taka sjálfa mig í gegn, kenna sjálfri mér að hugsa bara um einn dag í einu og hugsa jákvætt.  En það er hægara sagt en gert þegar maður er ekki alveg sáttur við hitt og þetta og vill fá hlutina strax en ekki á morgun eða hinn.  Skjiliði ;)

Ég, Selma og gamla settið skelltum okkur á HamborgaraFabrikkuna í gærkvöldi en ég & pabbi áttum eftir að prófa staðinn.  Þegar við mættum rúmlega hálf átta þá var slatti af fólki að bíða eftir borðum en þjónninn sagði okkur að við þyrftum kannski að bíða í 50mínútur.  Við ákv. að láta slag standa og bíða bara einsog allir hinir.  En hó hó, við þurftum svo bara að bíða í 25mínútur.  Hjúkket!
Við vorum ekki lengi að panta því við vorum jú búin að lesa matseðilinn staf fyrir staf á meðan við biðum.  HiHi. 
Ég fékk mér auðvitað hammara nr.08 en hann heitir Morthens enda er hann með bernaise sósu sem er fyrir mér algjört gúmmelaði :p

Já, ég er búin að plana sumarfríið mitt næstum því alveg.   Svona hljóðar það:
8.-10.júní verð ég í Hrísey með ömmu Láru.
10.-15.júní verð ég á Reyðarfirði hjá skötuhjúunum Ingu & Sigga.
15.-16.júní verð ég á Egilsstöðum hjá Lenu Dóru.
16.-20.júní verð ég einhversstaðar á austurlandinu.  Ég geri fastlega ráð fyrir því að stoppa á Höfn hjá föðursystur minni henni Margréti í 3-4 daga. 
20.-27.júní verð ég í borginni. 

Jæja, læt þetta duga í bili.
Hvernig væri svo að kommenta og leyfa mér að sjá hverjir villast ennþá hinga inn :)

Kv.
LáraH.

Staðan á MiraBilia myndinni minni.

17. apríl 2010 klukkan 12:07

21.mars - 16.apríl. 

Ég er ekki búin að gleyma ykkur sko ;)

08. apríl 2010 klukkan 00:54
Í gær, 7.apríl átti ég 16mánaða EDRÚ afmæli.  Jamm og já.  Ég á það til að velta því fyrir mér afhverju ég hafi ákveðið að hætta að drekka.  Stundum sakna ég þess og stundum ekki.  Stundum sakna ég bjórsins, auðvitað var oft gaman að vera í góðum félagsskap og sötra nokkra bjóra.  Stemmingin var oft gríðarlega skemmtileg Wink
........... Ég á bara eftir að læra það og sjá að það er líka hægt að hafa geggjað gaman án áfengis..........  Ekki það að ég sé að kvarta, mér gengur furðu vel að halda mér frá áfenginu enda hef ég ekkert farið niðrí bæ á svokallað "djamm" eða farið í teiti.  Kannski þess vegna sem mér gengur svona vel.  Veit ekki.  Kannski. 

Ég var í dansskólanum í kvöld.  Það eru ekki nema 2 tímar eftir.  Think God!  En merkilegt nokk þá gengur mér bara alveg ágætlega í dansinum.  Ég æsi mig mun minna en fyrstu vikurnar.  Ekki skrítið.  Það er bara þannig að það er mjög skemmtilegt að dansa þegar maður kann dansinn frá a-ö og ef dansfélaginn dansar á sama hraða og sá sem ekki stjórnar.  HiHiHi.  Skiljiði.  Eini dansinn sem ég bara þoli ekki því hann er bara svo djö**** leiðinlegur er mambó.  Pirrrrrrrrrrrrrrrrrrrr!

Í fyrramálið er ég að fara á KlippiStofu til Elínar.  Hún er konan sem heldur á skærunum og klippir á mér hárið.  Ég var seinast hjá henni fáeinum dögum fyrir þrítugs afmælið mitt svo það er sko kominn tími á að láta klippa aðeins af því og setja strípur líka.  Hlakka svo mikið til. 

Á mánudaginn næsta hefst 6vikna átaks-námskeið en ég skráði mig á það fyrir fáeinum dögum þegar ég gerði samning uppá 24mánuði.  Hreyfing er staðurinn minn.  Ég er nú reyndar búin að vera í hálfgerðu átaki undanfarna mánuði en þó bara með hálfum hug.  Það er jú betra en ekkert.  Ég er alltaf að léttast eitthvað en fer því miður alltaf upp aftur.  Fer alltaf aftur á byrjunarreit.  Böggandi! 
En einsog með ýmislegt annað þá er þetta vinna.  Lífið er bara vinna. 

Jæja, ætli það sé ekki viturlegt af mér að fara sofa bara.  Hef verið á fótum síðan klukkan 06:30 í morgun.  Ég átti morgunvaktina. 

Staðan á MiraBilia myndinni minni.

20. mars 2010 klukkan 21:09

22.feb-20.mars

Er að sauma þessa ;)

22. febrúar 2010 klukkan 00:04
  15.des-09.feb.


10.-21.febrúar.

Orkan er að koma :)

11. febrúar 2010 klukkan 18:17
Þvílíkur viðbjóður er það að næla sér í magapest.is - Jebb, ég náði greinilega að næla mér í eitt stykki svoleiðis en á laugardaginn var þá hófust lætin í maganum á mér.  Ojjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj.  Ekki nóg með það heldur var ég stödd hjá vinkonu á Sauðárkróki en ég ákvað að skella mér þangað í helgarferð. 
Allur dagurinn fór í þetta helvíti en eftir kvöldmat fannst mér einsog pestin væri sama sem hætt svo ég gat andað léttar.  Niiiii.  Ekki lengi því helvítið byrjaði aftur um nóttina og þá byrjuðu verkirnir.  Ái. 
Þarna um nóttina ákvað ég að ég skyldi komast heim hvernig sem ég færi af því.  En ég var mjög kvíðin fyrir heimferðinni.  Ekki skrítið. 
Heimferðin gekk bara vel miðað við heilsu.  Maginn hafði vit á því að hegða sér vel rétt á meðan keyrslunni stóð en ég var 3.5 klukkustund að komast heim. 

Ég er s.s. búin að vera slöpp síðan.  Ætlaði í vinnuna í dag en snar hætti við þegar maginn ákvað að byrja á helvítinu aftur.  Þessari pest fylgir lystarleysi, beinverkir, höfuðverkur, magaverkur og óteljandi wc-ferðir ;) 

Ennnnnnn eina jákvæða við þetta allt saman er að ég hef lést um 2 kg.  I like it.

En ég skal fara til vinnu á morgun.  Vinnuhelgi framundan + tveir dagar.  Svo verð ég í sumarbústað helgina þar á eftir.  Gaman.

Á sunnudaginn urðu mánuðurnir fjórtán.  Hugsa sér að ég hafi ekki smakkað á áfengi í 14mán.  Lúxus.