29 að verða 30 ára ;)
Ég er virkilega núna að átta mig á því að ég hef ekki bragðað á áfengi í að verða heilt ár. Pæliði í því, nánar tiltekið 350 dagar í dag. Ég hef enn ekki látið verða af því að fara á fundi, fór seinast á fund í borginn fyrir mörgum mánuðum. Er alltaf á leiðinni sko. Það tekur allt sinn tíma í mínu lífi, það er víst ;)
Annars gengur bara vel í vinnunni hjá mér. Svo vel að minnz er bara orðinn trúnaðarmaður. Jebb. Það er eitthvað nýtt fyrir mér. Ég byrjaði í 80% starfi, var hækkuð upp í 90% en er komin núna upp í 95%. Hærra fer ég væntanlega ekki en ég er sátt. Því miður fengum við leiðinlega frétt í vikunni en um mitt næsta ár verður stöðugildunum fækkað um tvo. Bömmer. Ég lífi í núinu ;)
Það er bara vika=3 tímar eftir af aðhaldsnámskeiðinu. Síðasti tíminn er daginn fyrir afmælið. Á eftir að ákveða mig hvort ég fari á frh.námskeið strax eða bíði með það fram yfir áramót. Er ekki alveg búin að ákveða mig.
Jæja, læt þetta duga í bili. Betra en ekkert ;)
TuttuguOgFjórirDagar
Ég leigði mér 100 fm bústað í grennd við Flúðir.
- Ég bara elska það að komast í bústað með skemmtilegum kjellingum (hihi, þær þola ekki þegar ég kalla þær kjellingar) en geri það samt. Sauma, kjafta, hlægja, pottast, sauma, sauma, borða, sofa. Aðallega sauma þó og kjafta. -
Fyrir rúmri viku byrjaði ég að finna fyrir óþægindum í stífluðum svitakirtli sem ég hef reyndar haft í nokkur ár. Hann hafði ekki böggað mig neitt nema það að mig langaði nú pínu að losna við hann. Kom svona bunga út á leiðinlegum stað. En hann er akkúrat staðsettur fyrir neðan annað brjóstið. Nema hvað að fyrir viku þá byrjuðu óþægindin og þau jukust með hverjum deginum sem leið. Bungan stækkaði og svæðið sem umræddi var fyrst undir 1cm en er núna 5-6cm. Og bungan hætti að vera ósýnileg því hún er varð eldrauð að lit. Ekki nóg með það að finna fyrir svona stóru kýli heldur verkjar mig ógeðslega í það.
Ég fór á læknavaktina á mánudaginn og doktorinn gaf mér pensílin. Ég er s.s. með sýkingu. Þegar sýkingin verður minni þá vilja þeir stinga gat á kirtilinn og svo seinna vilja þeir láta skera hann í burtu.
Ég var í veikindafríi á mán/þriðjudag því ég hef lítið getað hreyft mig, get jú hreyft mig en það er bara djöful vont. Það er í lagi á meðan ég sit bara kyrr en svo þegar ég stend upp þá verður mér allt í einu illt t.d. Hef ekki getað sofið á hægri hliðinni. Hef ekki farið í ræktina í vikunni heldur.
Fer til vinnu í dag en ég talaði við yfirmann minn og hún ætlar að vera svo góð að láta mig hafa léttan einstakling vegna þessa.
Vikan verður skondin en einsog ég sagði á undan þá er ég búin að vera í veikindafríi á mánud./þriðjud. Fer til vinnu í dag. Á morgun verð ég í vaktafríi. Hefði átt að vinna helgina en skipti við annan starfsmann. Svo ég verði í helgarfríi frá föstud.-sunnud. Á mánud./þriðjud. verð ég svo í vaktafríi. En vegna þessa þá mun ég vinna tvær helgar í röð.
Við mamma erum búnar að skipuleggja STÓRafmælið mitt frá a-ö. Ég sendi boðskortin af stað á mánudaginn og eru þau örugglega komin á áfangastað. Ég komst ekki í þrítugs afmælið hennar Sveinu vinkonu því ég fór skyndilega til UK, mér þótti það mjög leiðinlegt en við því var ekkert hægt að gera nema sætta sig við það. Hún fyrirgaf mér það held ég ;)
Svo líður að mínu afmæli og hún fer að tala um það að þau skötuhjúin ætla að fara í helgarfrí til Köben fyrir jól. Jújú, geriði það bara en mundu að ég á afmæli 28.11. Jebb, hún ætlaði sko að muna það og passa sig að fara ekki þá helgi en það endaði nú samt með því að þau bókuðu þá helgi. Jæja þá, ég verð þá líka að fyrirgefa henni það ;) HiHiHi.
Prjónavestið gengur vel, er búin með búkinn. Svo ég á deit við hana ömmu Láru á morgun en hún ætlar að leiðbeina mér hvað skal gera næst. Það verður forvitnilegt hvernig það á eftir að ganga.
Jæja, nenni ekki meiru í dag. Veriði nú svo væn að kommenta hjá mér svo ég viti hver er svona góður að fylgjast með blogginu mínu. Svo er gestabókin alltaf til staðar.
Over and out.
....................
Ég var svo í fríi á mánudaginn og í gær nema ég mætti á starfsmannafund á mánudagskvöldið.
Fer svo til vinnu í dag klukkan 16. Búin klukkan 22.
Ég ætla að vera í fríi á laugardaginn en ég var búin að lofa að skoða það að skipta við einn en ef ég vinn þá verður þetta fjórða helgin í röð sem ég vinn. Mig langar nú aðeins að fá að pústa. Svo ætla ég líka að skella mér á Sterkustu Konu Íslands sem haldin er í Smáralindinni. Uppgvötaði það fyrir nokkrum dögum en nágrannakona mín sem býr fyrir ofan mig er að fara keppa.
Ég skellti mér í níu bíó í gærkvöldi á sænsku myndina - sú var góð. Ójá. Við vinkonurnar fórum í Háskólabíó og ég mundi það loksins í gær þegar ég mætti á svæðið að gosið í sjoppunni bragðaðist ekki vel. Svo ég ákvað að kíkja á RISA sjálfsalann sem stóð álengdar. Ég er svo sjaldan með klink á mér en viti menn það er víst hægt að borga með korti eða símanum sínum svo ég ákvað að prófa síðari kostinn. Svo ég hringdi í númerið sem átti að hringja í og fylgdist með skjánum í leiðinni en þar birtist t.d. númerið mitt og svona. Svo allt í einu bara byrjaði sjálfsalinn að tjá sig. Jebb, hávær konurödd talaði við mig og hún talaði svo hátt að aðrir bíógestir snéru sér við og fylgdust með okkur skvizunum. HiHiHi.
En ég gat ekki keypt mér gos því símanúmerið mitt er ekki í áskrift og ég var ekki með kreditkortið á mér.
Fyrr um daginn fékk ég gesti en amma Lára og Áslaug systir hennar komu til mín í prjónakaffi en ég bakaði handa þeim bananana- og kryddbrauð kvöldinu áður. Við sátum hér þrjár í sófanum og prjónuðum og kjöftuðum út í eitt. Skemmtum okkur mjög vel, ég býð þeim fljótlega aftur.
Vestið gengur bara vel, ég er komin langt með búkinn.
Næturvörðurinn ritar nokkur orð.
Hljóðið kemur s.s. frá háaloftinu og er ég alveg 99% viss um það þetta eru mýsnar. En hér á Sólheimum hefur alltaf verið mikill músagangur, þær finna sér alltaf einhversstaðar gat til þess að komast inn. En vonandi finna þær ekki gat til að komast alveg inn til mín.
Þetta er frekar pirrandi hljóð því það er einsog þær ganga fram og tilbaka á háaloftinu og draga eitthvað á eftir sér. Og ég sit akkúrat í miðjunni í stofunni svo ég get ekki annað en heyrt vel í þeim hljóðið. Pirrrrrrrrrrrrrrrr!!
En þegar ég vann á hinu sambýlinu en það hús var byggt fyrir mörgum árum, þangað komust þær inn. Svo á ákveðnu tímabili í fyrra var farið út með eitt stykki húsamús út í tunnu á hverjum morgni en þær geta jú verið svo vitlausar og látið plata sig í gildrunar. En ég tók ekki að mér að fara með þær, þær eru nú krúttulegar en samt ekki dauðar í gildru.
Og hitt sambýlið sem er við hliðina á, svipaður aldur á því. Þar komust þær ekki inn í stofu en þær komust upp á milli veggina. Og þar var ég líka að vinna og þótti ég ekki gott að heyra í þeim á milli veggjanna svona þegar maður átti að sofa á sínu græna. Það var ekki mikið sofið þá.
Allavegana þá kemur ekkert annað til greina því það er svo mikið logn úti núna að laufblöðin hreyfast ekki múkk. Efast stórlega um að þetta séu kettirnir en það eru 2 kettir á svæðinu. Usssssss ....... hljóðið er hætt í bili. Vonandi eru þær bara farnar að sofa.
Hvað um það þá er þetta næturvakt 6 af sjö. Trúi því varla sjálf að það er komið að starfslokum mínum hérna fyrir austan. En ég er sátt. Hingað mun ég koma reglulega í heimsóknir. Áður en ég sótti um vinnu hérna þá hafði ég einhvern tímann fyrir langa löngu komið í heimsókn sem gestur hingað. Man nú ekki einu sinni hve gömul ég var. En heppin er ég að vera búin að kynnast starfseminni, heimilsmönnum og starfsfólki staðarins. Verður bara gaman að kíkja í heimsókn og hitta alla sem einn.
Fyrsta vaktin mín á nýja vinnustaðnum verður á fimmtudaginn 8.okt frá 15-21:30.
Bloggarinn ....
......... ritar nokkur orð frá Höfn í Hornafirði. Keyrslan í gær gekk bara mjög vel, stoppaði í hálftíma í Vík í Mýrdal. Svo á leið minni til Kirkjubæjarklausturs þá varð ég allt í einu svo þreytt að ég ákvað að reyna að hvíla lúin bein en ég lagði bílnum mínum á planinu við sjoppuna. Reyndi að sofna en mér tókst það ekki svo ég lagði aftur af stað fljótlega. En það dugði því ég var ekki eins þreytt.
Veðrið var mjög gott frá RvK til Klausturs en seinni hlutann keyrði ég í mikill rigningu. Þó var þurrt á Höfn.
En prjóna námskeiðið byrjaði strax eftir kvöldmatinn í gær, ég var búin að taka ákvörðun um að prjóna á mig vesti svo við frænkur fórum í það að skoða nokkur prjónablöð og fundum nokkur stykki en ég valdi eitt gott byrjunarverkefni. Svo þegar því lýkur þá er annað sem mig langar að prjóna en það er munstrað. Treysti mér ekki alveg í það strax.
En ég rifjaði upp hvernig ætti að fitja upp, svo lærði ég að prjóna brugðið. En núna er ég bara að prjóna garðaprjón sem ég kunni en er að reyna að læra að prjóna lausara en ég geri. Svo vonandi þegar það lærist þá fer ég að prjóna aðeins hraðar. Því með þessum hraða verður þetta vesti mitt búið árið 2011.
En hvað um það þá er ég fegin því að ég skellti mér í smá ferðalag, alltaf gott að komast í sveitina til Möggu frænku.
Over and out.
................................
Ekki á morgun heldur hinn kemst ég í viku vaktafrí og það í síðasta sinn en ég á bara eina vakt eftir hérna fyrir austan. NæS!
Undanfarna daga hef ég verið ansi lúin og pínu pirripú og get sofið alveg endalaust þess vegna hef ég tekið mér pásu frá ræktinni.
Ég hef verið dugleg að hugsa um matarræðið og þó svo að ég hef ekkert hreyft mig undanfarna viku þá er ég samt sem áður að léttast.
Ég ætlaði mér að ferðast í sumar innanlands en það breyttist jú þegar ég ákvað að skella mér til Englands í mánaðardvöl en nú hef ég tækifæri á að skella mér í ferðalag. Á þriðjudaginn ætla ég að aka austur á Höfn en ég er búin að bóka mig á einkanámskeið í prjónaskap hjá Margréti föðursystur minni en það er orðið rúmt ár síðan hún bauð mér að koma til sín í kennslu.
Í staðinn fyrir að keyra fram og tilbaka þá ætla ég bara að skella mér hringinn.
Jebb, því ekki það :)
Ástæðan fyrir því að ég fer hringinn er sú að ég ætla heimsækja Lenu Dóru "vinkonu" en hún býr á Egilsstöðum. En við skemmtum okkur svo vel í fyrra sumar þegar ég kom við hjá henni á hringferðinni minni um landið að ég má til með að kíkja aftur til hennar og gista eina nótt.
Svo mun ég halda heim á leið á sunnudeginum en stoppa væntanlega á Akureyri því ég á aðra vinkonu þar sem ég hitti sára sjaldan en það er hún Svandís úr saumaklúbbnum mínum.
Hlakka til.
Ég er ekki hætt ;)
En ég er ennþá fyrir austan fjall en ég skuldaði samstarfskonu minni nokkra daga í vinnu svo ég vann mína viku sem endaði á mánudaginn var og vinn núna fyrir hana fram á föstudagskvöldið.
En þá fæ ég helgarfrí og fer aftur austur á mánudaginn og þá bara í viku.
Helgarfríið mitt verður væntanlega mjög skemmtilegt en frændi minn í föðurættina er að fara gifta sig á laugardaginn. Og það á Flúðum. Þetta verður s.s. mitt fyrsta sveita brúðkaup. Við fjölskyldan ætlum að gista yfir eina nótt á Hótel Flúðum.
Seinasti dagurinn minn á Sólheimum verður 5.október. Verð á næturvöktum síðustu vikuna mína.
- Er að horfa á Ástríði á Stöð2 og ég er barasta að fíla þessa þætti, Ilmur er svo skemmtileg karakter. Skemmtilegir svipbrigðir sem hún hefur.
Þrefalt Húrra fyrir mig !!!
Fékk starf sem stuðningsfulltrúi á sambýli í Víkingshverfinu - byrjaði þann 26.ágúst sl.
Hætti væntanlega í byrjun október á Sólheimum.
Blogg frá Sólheimum.
Klukkutími síðan ég kom frá tækjasalnum en ég skellti mér í hann strax eftir vaktina mína klukkan 21 og tók vel á því. Boxaði frá mér allt vit í tuttugu mínútur en það tekur svo sannarlega á að boxa hratt og mikið. Fann orðið til í bakinu og öxlunum. Hlýt að fá einhverjar harðsperrur á morgun.
Stefni á að skella mér aftur í tækjasalinn eftir vaktina á morgun. Kem svo í bæinn á mánudaginn.
Þessi vika hefur liðið frekar hratt. Sem er jú bara gott. Hef verið að kenna nýjum starfsmanni sem byrjaði bara hérna í Bláskógum á mánudaginn. Gengur vel.
Fór í atvinnuviðtal á mánudaginn hjá Dreifingu/Kjötbankanum en þeir áttu laust starf handa mér í því síðarnefnda á lagernum. Fyrst varð ég frekar spennt fyrir því en mig langar mikið til að vinna á lager í framtíðinni en svo hef ég verið að hugsa um þetta starf undanfarna daga og hef ég tekið ákvörðun um að afþakka það. En ég sé mig ekki vinna á þessum lager lengi, vinnutíminn hentar mér ekki, hef lítinn áhuga á að vinna meira og minna í kæli og svo eru þetta extra þungar birgðir enda kjöt.
En ég á alltaf eftir að fara í viðtalið á nýja sambýlinu sem er verið að fara opna í haust en ég ætla hitta forstöðukonuna á mánudag/þriðjudag.
Ég bið til Guðs að þetta sambýli henti mér. Ég tel það best að starfa áfram með fötluðum en mér þykir það svo skemmtilegt þó það getur verið mjög krefjandi. Stundum þreytandi en þetta hentar mér vel. Mér þykir nú vænt um fólkið mitt hérna á Sólheimum. Hver og einn einstaklingur er yndislegur á sinn hátt, enginn er eins.
Ég reyni að vera dugleg að hitta frænku mína hana Jóhönnu en hún er fötluð. Við höfum meira og minna alist upp gegnum árin en hún var mikið hjá mér og minni fjölskyldu þegar hún var yngri. En hún er nokkrum árum eldri en ég. Við erum góðar saman :)
Það eru þrjár vikur í dag en þann 12.september fer ég í brúðkaup í sveitinni hjá syni föðursystur minnar. En þau búa á Flúðum og munu gifta sig seinni partinn og veislan verður svo beint á eftir. Eftir veisluna klukkan 22 þá verður farið á ball að mér skilst. Vegna þess ætla held ég bara flestir sem mæta í brúðkaupið að gista yfir eina nótt en við fjölskyldan höfum pantað herbergi á Hótel Flúðum. Ekki nenni ég að keyra í bæinn í svarta myrkri og seint um nótt.
Ég prófaði að sækja um bústað þessa helgi hjá stéttarfélagi mínu en þau eiga þrjá bústaði á Flúðum en það varð jú einhver á undan mér en það hefði verið brilliant því helgin kostar ekki nema 10.000 krónur. En 14.000 krónur kostar tveggja manna herbergi yfir nótt.
Akkúrat núna datt mér í hug að sækja um bústað einhverja aðra helgi ... kemur svo í ljós hvern ég býð með mér ;)
Jæja afi, hvernig líst þér á þetta blogg ?
Þangað til næst. Hils.
